Vinir okkar á Suðulansbrautinni sem hétu áður Stöð 2, stöð 2 sport og vodafone eru búin að semeinast í öflugt merki sem heeytir SÝN  Ný auglýsing Sýnar var frumsýnd í dag. Þar er Auðunn Blöndal í hlutverki Alberts Einstein og Steindi tekur sig vel út sem Oppenheimer.

Í dag sameinast vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð2+ og Stöð 2 Sport undir merki Sýnar.

Í tilkynningu frá Sýn segir að samruninn sé mikilvægur þáttur í því að einfalda ásýnd og vöruframboð félagsins í anda þeirrar stefnumörkunar sem félagið kynnti á mörkuðum í lok síðasta árs. 

Breytingarnar eru nánar tiltekið þessar:

  • Sýn er nýtt aðalheiti félagsins sem kemur í stað Vodafone og Stöðvar 2. Öll þjónusta fyrirtækisins verður aðgengileg á vefnum syn.is. 
  • Fjarskiptaþjónusta er hér eftir veitt í nafni Sýnar í nánu samstarfi við Vodafone Group á alþjóðavísu sem tryggir áfram öfluga vöruþróun, innviði og aðgang að alþjóðlegri þekkingu. 
  • SÝN er nýtt heiti á línulegu sjónvarpstöðinni Stöð 2. Þar verður áfram hægt að horfa á hágæða sjónvarpsefni, innlent og erlent sem og kvöldfréttir alla daga ársins. 
  • SÝN+ er nýtt heiti á streymisveitunni Stöð 2+ sem býður upp á fjölda íslenskra og erlendra þáttaraða, vandað talsett barnaefni og gott úrval kvikmynda. 
  • SÝN Sport er nýtt heiti á Stöð 2 Sport og mun stöðin áfram bjóða upp á besta sætið í heimi íþrótta – og er enski boltinn þar á meðal. 
  • Fréttastofa Sýnar er nýtt heiti á Fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar sem heldur áfram að flytja fréttir á Vísi, sjónvarpsstöðinni Sýn og Bylgjunni.

Útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 halda sínum nöfnum óbreyttum sem og fréttamiðillinn Vísir. Vörumerki þeirra verða þó aðlöguð að vörumerkjastefnu Sýnar.

 

Lesa meira HÉR

Vefsónvarpið fer frá slóðinni: sjonvarp.stod2.is ➡️ sjonvarp.syn.is